Góður þjónustufulltrúi

 

Það verður ekki fallegra, meira töfrandi, meira gefandi né auðveldar, en það er nákvæmlega núna.

Þ.e. ekki fyrr en þú ferð að gera ráð fyrir að svo verði.

Á þeim tímapunkti vona ég að þú hafir góðan þjónustufulltrúa.

Væntingar safna nefnilega liði.

Alheimurinn


Þetta var auðvelt

 

Allt mun virðast auðveldara, ef þú hefur í huga, allan tímann, að það Á að vera auðvelt.

Allt.

Þetta var auðvelt,

Alheimurinn

 


Hvað með þig?

 

Ég hef verið að hugsa um óskirnar þínar.  Í rauninni hef ég MIKIÐ verið að hugsa um þær.  Reynt að sjá fyrir mér hvaða áhrif þær munu hafa á líf þitt.  Stundum (ok - daglega) ímynda ég mér að þær hafi ræst.  Ég sé þig oft fyrir mér njóta þeirra, hjarta þitt slær hraðar, vinir þínir tala og jafnvel nágrannarnir.  Ég heyri næstum oooohhh-in og aha-in, ég finn fyrir klappinu og bragðinu af sigrunum - á þínum vörum.

Hvað með þig?

Alheimurinn


Kysst - á báðar kinnar

 

Þegar þú skilur að vonbrigði þín gagnvart framkomu eða vali annara, er vegna þroskaleysis þeirra - eða þínu, frekar en vegna vonsku þeirra - eða þinnar - þá verður erfiðara fyrir þig að fara ekki valhoppandi í gegnum lífið, ískrandi af gleði - lyktandi af blómunum.

Þar að auki - þegar þú skilur að með nægum þroska af þinni hálfu getur þú alltaf fundið frið í samböndum þínum og það verður erfiðara að vera ekki hlaupandi um göturnar kyssandi alla sem þú mætir - á báðar kinnar!

Koss, koss -

Alheimurinn


Stærstu ákvarðanirnar

 

Ég myndi segja að stærstu ákvarðanirnar í þínu lífi, séu ekki frami, hjúskaparstaða eða heimilið þitt - heldur að elska eins oft og þú hefur gert.

Og - það er þónokkuð,

Alheimurinn


Sætari, mjórri, gáfaðri

 

Auðvitað getur þú alltaf fundið einhvern sætari, mjórri, gáfaðri, ríkari, yngri og meira töff.  En oftar en ekki lærir þú meira, hlærð hærra og brosir breiðar - með þeim sem ÞEIR hafa fundið - sérstaklega þegar þeir hætta að leita.

Bæ í bili,

Alheimurinn

 


Hrein snilld

 

Hrein snilld er ekki bara að skilja hvernig maður sér heiminn, hvernig maður finnur reglu, lógík og hið andlega í honum.  Hrein snilld er að skilja að þín sýn á reglu, lógík og andlega þáttinn er það sem býr til þinn heim.

Og að geta, þar af leiðandi, breytt öllu sjálf(ur).

Alheimurinn


Þú og besti vinur þinn

 

Pssssst...... Ekki að þú myndir nokkurn tíma gera svona....... - en þegar einhver segir besta vini sínum frá t.d. erfiðum degi, vandræðum í sambandinu eða að þeir eigi bara nokkuð gott líf, nema kannski fjárhagslega - þá er viðkomandi ekki bara að losa sig við óþægindi heldur er viðkomandi líka að safna kröftunum til að búa til framtíðina sem þeir vilja.   En þú notar ekki orðin "nokkuð gott" - er það nokkuð??

Við hvíslum bara.

Alheimurinn

 


Að fara gegn straumnum

Til að  hafa hugrekki til að velta fyrir þér öðrum lífsviðhorfum en þeim sem flestir hafa - án þess að taka mið af öðrum fólki eða aðstæðum - jafnvel þessum viðhorfum sem fara gegn straumnum - þá þarftu að vera andlegur risi með barnslega forvitni.  Og líka hafa endalausa þrá fyrir meira en lífið býður uppá.

Já - þú ert búinn að ná þessu.

Alheimurinn

 


Allt sem þér þykir vænt um

 

Nálgastu allt sem þér þykir virkilega vænt um - eins og þú virkilega, virkilega meinir það.

Og ég virkilega, virkilega meina það.

Alheimurinn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband